Náðu í appið
Gagnrýni eftir:



A Knight's Tale
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Snilldar gamanmynd. Þeir sem stóðu að þessari voru alls ekki að taka sig alvarlega og það sést vel í myndinni. Sambland miðalda við 20. aldar menningu tekst oftast snilldar vel og gefur myndinni einstakan, en undarlegan, feeling. Ekkert er verið að hafa allt of miklar áhyggjur af plotti, vondi kallinn er bara vondur, hann þarf enga ástæðu. Margar persónurnar í myndinni eru algjör snilld og ber þar hæst nakta ritarann. Bardaga atriðin eru mjög vel gerð og þótt bandarískri væmni sé nokkuð fyrir að fara er hún óvenjuvel gerð og atriðið með föðurinn er hreinlega með þeim bestu sem ég hef séð lengi. Tónlistin í myndinni er hreint út sagt frábær, bæði það sem samið er sem bakgrunns tónlist og svo 20. aldar rokktónlistin sem spila stóran þátt í sumum af bestu atriðum myndarinnar (sér í lagi ballið). Til þess að hafa gaman af þessari mynd verður maður, að ég held, að vita hverju er að búast við og alls ekki taka neinu alvarlega. Þessi er must fyrir alla sem hafa gaman að komedíum og er fyllilega 3 stjörnu virði ef ekki meira vegna frumlegheita.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
The Nutty Professor 2
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Þetta hlýtur að vera lélegasta kvikmynd sem ég hef séð. Nutty Professor I var þó alla vega fyndin á köflum þótt hún væri ekkert snilldarverk en ég hreint út sagt skammaðist mín þegar ég fór að skila þessari á leiguna.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei