Náðu í appið
Gagnrýni eftir:



Braindead
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Pottþétt ein blóðugasta mynd sem gerð hefur verið! Lionel er nýjasjálenskur og á heima á setri með mömmu sinni Veru sem er snobbuð og leiðinleg. Einn dag fer hann með kærustu sinni í dýragarðinn. En þar sem að engin er nógu góð handa syni hennar eltir mamma hans þau í dýragarðinn þar sem hún njósnar um þau. En þar er hinn bölvaði rottuapi sem bítur mömmuna. Eitt leiðir af öðru þar til að mamman deyr. EÐA HVAÐ?! Skyndilega breiðist þetta um bæinn og allir breitast í heiladauðar afturgöngur sem éta allt sem hreyfir sig! Eitt gerist af öðru sem leiðir í einn blóðugasta endi sem tekinn hefur verið upp!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Shaun of the Dead
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

ÞESSI MYND ER ÆÐISLEG!!! Breskur húmor eins og hann gerist bestur! Frábærlega leikið meistaraverk! Ég gef henni tíu stjörnur af fjórum mögulegum! Ég var glottandi alla leiðina heim! Ég hef aldrei skemmt mér jafnvel í bíó!!!! 800 króna virði skal ég sko segja ykkur!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei