Ný og flottari plaköt fyrir The Dark Knight Rises!

Jæja, markaðsteymi Warner Bros. í Bandaríkjunum; nú erum við að tala saman!
Nýja bíóplakatið fyrir tilvonandi stórsnilldina The Dark Knight Rises hefur fengið heldur blendnar viðtökur á mjög stuttum tíma (líklegast út af þessari ástæðu), en hvað gerist þá? Warner bombar út þremur sjóðheitum karakter-plakötum til að kæla niður aðdáendur og á sama tíma auka tilhlökkunina.

Hér sjáið þið Kisulóruna, Bane og Blaka í allri sinni dýrð. Og strákar! Munið að þegar Anne Hathaway skipar ykkur að rísa, hvernig sem þið viljið hafa það, þá skuluð þið gjöra svo vel og hlýða dömunni.

Jææææja….
… ertu til í að drífa þig hingað, Júlí?!