Nýr Teaser fyrir District 9

Við vorum að setja inn nýjan funheitan teaser fyrir District 9 sýninguna á youtube og hér á síðuna. Í myndinni segir frá risastóru geimskipi sem, á leið sinni um himingeiminn, staldrar við yfir
Suður-Afríku. Leiðangur nokkur fer og kannar málið og finnur þar fullt
af veikum, vannærðum skepnum sem virðast hafa lent óvart á jörðinni.
Þessar geimverur eru fluttar yfir í sérstakt aflokað hverfi sem hlýtur
viðurnefnið District 9. Menn reynast hins vegar ekki vera gestrisnari
en svo að að nýja heimilið breytist skjótt í útrýmingarbúðir. Hlutirnir
fara síðan á verri veg þegar ákveðið er að færa verurnar á annan, mun
afmarkaðri stað. Um leið og sú aðgerð fer í gang, hefst martröðin fyrir
alvöru.