R2D2 er fyrsta persónan sem hefur verið staðfest í nýju Star Wars-myndina.
Disney staðfesti í gær að vélmennið, sem hefur komið við sögu í öllum sex myndunum til þessa, muni snúa aftur í mynd JJ Abrams.
Kenny Baker hefur hingað til talað fyrir R2D2 en ekki er vitað hvort hinn 79 ára leikari muni snúa aftur í Episode VII.
Orðrómur hefur verið uppi um að Mark Hamill (Luke Skywalker), Carrie Fisher (Princess Leia) og Harrison Ford (Han Solo) muni öll snúa aftur í nýju myndina en ekkert hefur verið staðfest þess efnis.