Fyrsta kitlan er komin út fyrir nýjustu mynd grínleikkonunnar Melissa McCarthy, Tammy. McCarthy leikur konu sem fer í ferðalag með ömmu sína, sem leikin er af Susan Sarandon, í eftirdragi, eftir að hún missir vinnuna og eiginmaðurinn fer frá henni.
Eins og sjá má í kitlunni sýnir McCarthy kunnuglega takta, eins og flestir ættu að þekkja úr gamansmellinum Bridesmaids, nema hér er hún að ræna hamborgarabúllu með bréfpoka á hausnum.
Kíktu á kitluna hér fyrir neðan:
Leikstjóri er Ben Falcone og aðrir leikarar eru Mark Duplass, Kathy Bates og Toni Collette.
Tammy verður frumsýnd í sumar.