Netflix vídeóleigan hefur gefið út nýja kitlu fyrir stiklu fyrir aðra þáttaröð sjónvarpsþáttanna vinsælu House of Cards með Kevin Spacey í aðalhlutverkinu sem frumsýnd verður þann 14. febrúar nk.
Sjáðu kitluna hér fyrir neðan:
Eins og sést í kitlunni er heldur lítið á henni að græða efnislega, enda er þetta einfaldlega bara mynd af Robin Wright að reykja vindling!
Fyrsta þáttaröðin fór í loftið 1. febrúar á þessu ári, en Netflix gaf alla seríuna út í einu. Þættirnir voru tilnefndir til nokkurra Emmy verðlauna, þar á meðal sem besta drama sería, Kevin Spacey og Robin Wright fyrir leik og David Fincher fyrir leikstjórn.