Rita Gam, leikkona og fyrsta eiginkona hins þekkta leikstjóra Sidney Lumet er látin. Hún var 88 ára gömul.
Samkvæmt the Hollywood Reporter lést hún vegna veikinda í öndunarfærum á Cedars-Sinai spítalanum í Los Angeles í gær, þriðjudag.
Á ferli sínum sem leikkona lék hún í myndum eins og Saadia, Sign of the Pagan og King of Kings.
Hún var brúðarmær Grace Kelly þegar leikkonan giftist Rainer prins árið 1956.
Gam lék einnig á sviði, þar á meðal í leikritum eins og Wit & Wisdom, Hamlet og There’s a Girl in My Soup.
Gam var gift Lumet frá 1949 til 1955 þegar þau skildu, og Gam giftist Thomas Guinzberg ári síðar.
Hún lætur eftir sig dóttir og son, kvikmyndaframleiðandann Kate Guinzberg og rithöfundinn Michael Guinzberg.