Eins og við sögðum frá í október, þá mun Elizabeth Banks leika í myndinni Walk of Shame þegar tökum lýkur á The Hunger Games: Catching Fire, þar sem hún leikur hina skrautlegu Effie Trinket.
Nú hefur leikarinn Willie Garson úr sjónvarpsþáttunum Sex And The City, bæst í leikarahóp Walk of Shame.
Garson lék eins og margir muna, samkynhneigðan vin Carrie Bradshaw í Sex and the city.
Walk of Shame fjallar um metnaðargjarnan fréttaþul ( Banks ) hjá sjónvarpsstöð í Los Angeles, sem klúðrar prufuupptöku fyrir draumastarfið. Hún ákveður að sleppa algjörlega fram af sér beislinu og djammar fram í rauðan dauðann alla nóttina og vaknar í rúmi með ókunnugum manni, peningalaus, bíllaus, minnislaus og með skilaboð á símanum frá umboðsmanninum sem segir henni að hún hafi í raun og veru komið komið best út í prufunum.
Nú þarf hún að feta sig skömmustuleg í gegnum slæmt hverfi, til að komast í sjónvarpssal fyrir kl. 17.
Garson mun leika yfirmann Banks í Walk of Shame.
Leikstjóri verður Steven Brill sem einnig skrifar handritið. Hann hefur áður leikstýrt Drillbit Taylor, Without a Paddle og Mr. Deeds.
Walk of Shame er væntanleg í bíó árið 2014.