Sjáðu Basterds á undan flestum!

Á miðnætti þann 21. ágúst (í kvöld) mun Kvikmyndir.is vera með sérstaka forsýningu á nýjustu mynd Quentins Tarantino, Inglourious Basterds.

Sýningin verður í stóra salnum í Laugarásbíói. Miðaverð er 1200 kr.

Það
verður einnig smá Nexus-bragur á sýninginni þar sem myndin verður sýnd
án hlés (sem útskýrir líka verðið). Þetta er sami dagur og frumsýningin
er vestanhafs, en myndin verður annars frumsýnd þann 26. ágúst.

Búið er að loka fyrir miðasöluna á netinu. Hins vegar verða einhverjir miðar seldir við innganginn fyrir sýningu.

*UPPFÆRT*
Myndin hefur annars verið að fá vægast sagt skothelda góða dóma. Þegar þessi texti er skrifaður er myndin með 87% á RottenTomatoes.com. Hér eru annars nokkur dæmi um þau meðmæli sem ræman hefur verið að fá:

4/4
ROGER EBERT

4/4
An audacious, thoroughly entertaining mashup of WWII films and spaghetti westerns. – REELVIEWS.NET

4.5/5
As
entertaining as it is audacious, a film that showcases Tarantino in top
form and boasts a multitude of characters who could easily carry a
movie of their own. –
Metromix


9.5/10

Ballsy, brash and utterly committed to the revolutionary power of cinema, Inglourious Basterds is a completerly remarkable film
CHUD

9.5/10
F**K! I loved this movie! JoBlo.com

3.5/4
The most fun you’ll have had at the movies this summer! – New York Post

4/5

Tarantino tries his hand at an international ensemble with some rather Inglourious results. – Cinemaobsession.com

Inglourious
Basterds segir frá bandarískri herdeild sem er send inn á mitt
yfirráðasvæði Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni til þess að drepa
eins marga þýska hermenn og hún mögulega getur og brjóta niður
liðsandann í hernum. Með helstu hlutverk fara Brad Pitt, Eli Roth,
Christoph Waltz, Daniel Brühl, Til Schweiger, Diane Kruger og Mélanie
Leurent.

Myndin er bönnuð innan 16 ára. Annars vonumst við til að sjá sem flesta.

ATH. Þeir sem að mæta í búningum í stíl við myndina fá spes Basterds-tengdan varning við innganginn.