Ný stikla úr teiknimyndinni Angry Birds, sem er byggð á hinum vinsæla samnefnda snjallsímatölvuleik, er komin út.
Í myndinni talar Jason Sudeikis fyrir fúla fuglinn Red, sem býr á eyju þar sem nánast allir fuglarnir geta ekki flogið. Þegar hin dularfullu grænu svín mæta á svæðið, líst Red ekki á blikuna.
Josh Gad talar fyrir fuglinn Chuck og Danny McBride fyrir Bomb.
Myndin er væntanleg í bíó í þrívídd í maí næstkomandi .