Glæný tveggja mínútna kitla fyrir framhaldsmyndina Star Trek Into Darkness í leikstjórn J.J. Abrams, er komin út.
Fyrsta kitlan úr myndinni kom út fyrir tveimur vikum við góðar undirtektir trekkara. Þeir geta núna glaðst á nýjan leik yfir þessari kitlu sem lofar ansi hreint góðu. Myndin sjálf kemur í bíó í maí á næsta ári.
Með helstu hlutverk í Star Trek Into Darkness fara Chris Pine, Zachary Quinto, Karl Urban, Simon Pegg, Zoe Saldana, Peter Weller, Anton Yelchin, John Cho, Alice Eve, Bruce Greenwood og Benidict Cumberbatch.
Skoðaðu stikluna hér að neðan: