Desemberhefti kvikmynda – og DVD/Blu-ray/VOD tímaritsins Myndir mánaðarins er komið út í rafrænni útgáfu. Eins og ávallt er blaðið sneisafullt af áhugaverðu efni í bland við kynningar á nýjustu myndum bíóhúsanna í desembermánuði, sem og nýjum myndum sem gefnar verða út á DVD, Blu-ray og/eða VOD í mánuðinum.
Á forsíðum blaðsins eru annarsvegar engin önnur en nýjasta Star Wars myndin, Star Wars: The Force Awakens, sem frumsýnd verður 17. desember nk, og í vídeóhlutanum er Owen Wilson, Lake Bell og Pierce Brosnan í No Escape, sem kemur út á DVD/VOD þann 3. desember.
Einnig má í blaðinu sjá það nýjasta á tölvuleikjamarkaðnum og margt fleira, eins og stjörnuspá, gullkorn, bíófréttir og bíómiðaleik.