Komin er upp Instagram-síða í kringum Star Wars: Episode VII. Á henni sést Svarthöfði smella mynd af sjálfum sér.
Einnig er á síðunni gömul mynd af Darth Vader og Luke Skywalker að berjast í myndinni The Empire Strikes Back.
Tökur á Star Wars: Episode VII hefjast í janúar á næsta ári og ríkir mikil eftirvænting eftir henni.
Myndin verður frumsýnd í desember 2015.