Fyrsta myndin af ofurhetjunni Aquaman ( Vatnsmaðurinn ) hefur verið birt, en leikstjórinn Zack Snyder setti myndina á Twitter í gærkvöldi, fimmtudagskvöld.
Game of Thrones leikarinn Jason Momoa fer með hlutverk ofurhetjunnar í nýjustu mynd Snyder, Batman v Superman: Dawn of Justice, og í öðrum Justice League myndum sem kunna að verða gerðar í framtíðinni.
Í teiknimyndasögunum frá DC comics, þá er Aquaman konungur hinna sjö úthafa.
There is only one true King. #unitetheseven pic.twitter.com/RDFG8jbuI6
— ZackSnyder (@ZackSnyder) February 20, 2015
Batman v Superman Dawn of Justice kemur í bíó 25. mars, 2016.