Ný íslensk kvikmynd í fullri lengd, Webcam, er væntanleg síðar á árinu, en myndin er gamanmynd um tvítuga stúlku sem gerist „cam-girl“ ( webcam-stelpa sem berar sig fyrir framan vefmyndavélina og sendir efnið út á netinu ).
Nýverið kom út fyrsta kitla fyrir myndina og má sjá hana hér fyrir neðan:
Nýtt kitl-plakat er einnig komið út auk þess sem búið er að opna Facebook síðu.
Leikstjóri myndarinnar og handritshöfundur er Sigurður Anton Friðþjófsson og framleiðandi er Magnús Thoroddsen Ívarsson. Anna Hafþórsdóttir og Telma Huld Jóhannesdóttir fara með aðalhlutverkin í myndinni.