„Þessir óvenjulegu tímar sem Covid-19 veldur snerta kvikmyndagerðina eins samfélagið í heild sinni. Starfsemi kvikmyndahúsa og annarra menningarstofnana raskast verulega og kvikmyndahátíðin Stockfish hefur þurft að aflýsa nánast öllum viðburðum hátíðarinnar og frumsýningum nýrra mynda er frestað.“
Svona hefst tilkynning Kvikmyndamiðstöðvar Íslands (KMÍ) og segir þar frá áhrifum kórónaveirunnar á kvikmyndagerðina hér á landi.
Fram kemur að tilmæli sóttvarnarlæknis og almannavarna gera það erfitt að vinna við tökur á víðamiklum verkefnum og munu kvikmyndagerðarmenn í mörgum tilvikum tilneyddir að hætta við eða fresta verkefnum. Sama á við þjónustu við erlend tökulið sem höfðu boðað komu sína til landsins. Framundan sé verulegur tekjumissir fyrir flesta sem sérhæfa sig í íslenskri kvikmyndagerð. Í tilkynningunni segir:
„Kvikmyndahátíð og markaði í Cannes hefur verið frestað fram á sumar. Mörgum íslenskum myndum og aðstandendum þeirra hafði verið boðin þátttaka á öðrum alþjóðlegum kvikmynda- og sjónvarpshátíðum sem átti að halda núna á vormánuðum en hefur verið frestað eða aflýst. Þar með riðlast allar áætlanir um sölu og dreifingu sem kemur niður á þeim framleiðendum og leikstjórum sem eiga í hlut fjárhagslega og einnig varðandi þróun og fjármögnun annarra verkefna.“
Segir einnig í tilkynningunni að sérstaða kvikmyndagreinarinnar sé meðal annars sú að hún byggir að mestu á vinnu sérhæfðra verktaka og sjálf framleiðslufyrirtækin eru oftast lítil með afar fáa fasta starfsmenn. Auk þess á kvikmyndagreinin sér ekki heimili sem byggir á föstum starfsmönnum eins og aðrar lykillistgreinar, til dæmis leikhús, söfn og sinfónían.
„Það er því ljóst að flestir sem hafa sérhæft sig í kvikmyndagerð verða fyrir verulegum tekjumissi. Á það hefur verið bent og stjórnvöld muni skoða stöðu þeirra sem starfa í listgreinum sérstaklega og eru nú þegar undirbúnar aðgerðir á vinnumarkaði til að milda mestu höggin. Mennta- og menningarmálaráðuneytið skoðar ýmsar lausnir og möguleika í samvinnu við önnur ráðuneyti. Aðgerðir munu verða kynntar á næstunni um leið og þær liggja fyrir.
Við hjá KMÍ munum leita allra leiða til að koma til móts við þau sem eru með styrkvilyrði og tilneydd að breyta fyrri áætlunum vegna ástandsins sem ríkir þessar vikurnar. Sama á við erlenda sjóði sem Ísland er aðili að, þar eru einnig skoðaðar útfærslur til að sveigja tímaáætlanir með hag framleiðenda í huga og minnka fjárhagslegan skaða sem fyrirtækin kunna að verða fyrir vegna veirunnar.“