Það hefur eflaust ekki farið framhjá landsmönnum hvað hlaðvörp (e. podcast) hafa notið mikilla vinsælda síðustu árin. Úrval íslenskra hlaðvarpsþátta hefur aldrei verið betra og stefnir allt í að formið sé komið til að taka yfir útvarp, í það minnsta hjá ákveðinni kynslóð.
Á þessu ári hefur framboð á kvikmyndatengdum hlaðvarpsþáttum verið í mikilli uppsveiflu. Þá þýðir fátt annað en að skoða það sem er í boði á þessum mikla markaði, en hér eru 10 íslensk hlaðvörp um kvikmyndir og tilheyrandi.
180° reglan
Hlaðvarp um kvikmyndagerð í umsjón Freyju Kristinsdóttur. Í þættinum ræðir Freyja við fólk sem starfar á ólíkum vettvangi í kvikmyndageiranum á Íslandi.
Bíóblaður
Bíóblaður snýst um að spjalla um bíómyndir á léttum nótum og fá fólk til þess að kunna betur að meta þetta skemmtilega listform sem bíómyndir eru. Hafsteinn Sæmundsson stýrir þættinum.
BÍÓ á MBL
Þátturinn er í umsjón tveggja blaðamanna Morgunblaðsins, Helga Snæs Sigurðssonar og Þórodds Bjarnasonar. Í hverri viku er fjallað um kvikmyndir, einkum þær sem eru í bíó hverju sinni, og ýmislegt viðkomandi listgreininni. Verður jafnvel farið út fyrir rammann og talað um sjónvarpsþætti ef tilefni þykir til.
Bíó Tvíó
Bíó Tvíó er skemmtilegt, vikulegt hlaðvarp um íslenskar kvikmyndir. Andrea Björk og Steindór Grétar hafa lagt upp með að horfa á hverja einustu íslensku kvikmynd og ræða um þær af töluverðri ástríðu. Hlaðvarpið var síðast á dagskrá RÚV núll og þar áður á Alvarpinu.
Búnir með poppið
Hlaðvarp um kvikmyndir þar sem þáttastjórnendur fara saman í bíó og spjalla oft saman eftir myndina.
Engar stjörnur
Engar stjörnur er sveit kvikmyndarýna innan háskólans í umsjá Björns Þórs Vilhjálmssonar og Kjartans Más Ómarssonar. Hópurinn rýnir í kvikmyndir með beittum og gagnrýnum hætti og birtir skrif sín rafrænt bæði á vef kvikmyndafræðinnar og Hugrás: Vefriti Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands.
KámCAST
Hlaðvarpsþáttur Facebook-hópsins Kvikmyndaáhugamenn. Það er Jóhann LePlat Ágústsson, umsjónarmaður grúppunnar, sem fjörinu stýrir.
Popp og kók
Popp og kók er hlaðvarp RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Þáttastjórnendur spjalla við þjóðþekkta einstaklinga, kvikmyndaáhugafólk og ýmsa skemmtilega viðmælendur um kvikmyndir.
Stjörnubíó
Heiðar Sumarliðason tekur reglulega á móti gestum af ýmsum toga; gagnrýnendur, kvikmyndagerðarfólk og alla sem þar sitja á milli. Til umræðu er það nýjasta og helsta í kvikmyndahúsum eða á streymisveitum.
Vídeóleigan
Kvikmyndahlaðvarp þar sem æskuvinirnir Atli Steinn og Atli Þór rannsaka sígilda eða splunkunýja kvikmynd og skoða hana frá öllum mögulegum vinklum.