Þættirnir Circledrawers er komin á netið. Hér fylgir fréttatilkynning frá Poppoli:
Þættirnir Hringfararnir, eða Circledrawers í leikstjórn Ólafs
Jóhannessonar hefja göngu sína í dag, 1. maí á veraldarvefnum. Um er að
ræða fyrstu íslensku vefþáttaseríuna sem frumsýnd er á internetinu,
öllum opið til áhorfs. Þættirnir eru níu talsins og eru frumsýndir með
viku millibili og eru sniðnir að Bandarískri fyrirmynd um vefþætti.
Hægt er að sjá þættina á margmiðlunarsíðunum Blip.TV, YouTube.com, Hulu sem og í gegnum forritið iTunes ásamt um 50 öðrum
vefmiðlum víðsvegar um heiminn. Einnig er boðið upp á að versla þáttaseríuna í heild sinni á opinberri heimasíðu þáttanna http://www.circledrawers.com
„Þetta
er ákveðin tilraun, að kynna þennan englaheim á þennan máta. Að sjá
hvort fólki hafi áhuga á efninu og hvort það sé ástæða til að halda
áfram að þróa verkefnið. Þetta er alþjóðlegt efni í léttum dúr sem
verður forvitnilegt að sjá hvernig það spjarar sig á sólaströndum
internetsins.“ segir Ólafur, annar skapari og leikstjóri þáttanna.
Hringfararnir
segir frá hópi engla sem kallast Hringfarar sem eru neðstir í fæðukeðju
englastéttarinnar. Verkefni þeirra getur verið allt frá því að
blómapottur detti niður á rétta manneskju eða að hjálpa fólki yfir
landamæri lífs og dauða. Draumur hvers Hringfara er að ná að klára
lista af verkefnum áður en þeir deyja svo þeir geti fengið verðlaunin,
að fæðast sem manneskja. Þetta er nær ómögulegt þar sem englaheimurinn
er hægvirkur eins og skattstofa full af klaufaskap og s einagangi.
Það er Soprans leikarinn Steve Schirripa sem hefur
verið andlit þáttanna í kynningu þeirra á netinu, hann fer með hlutverk í þáttunum.
Í
helstu hlutverkum eru Hilmir Snær Guðnason, Logan Huffman, Benedikt
Erlingsson, Stefan Schaefer, Steve Schirripa, Jóhann G. Jóhannsson,
Sharon Angela, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Örn Árnason.
Hringfararnir
er leikstýrt af Ólafi Jóhannessyni eftir handriti hans og Stefan
Schaefers. Áður unnu þeir að handriti Stóra plansins sem Ólafur
leikstýrði. Ólafur er einnig leikstjóri kvikmyndanna The Truth About
Queen Raquela og Africa United. Þættirnir eru framleiddir af Poppoli
kvikmyndafélaginu í samstarfi við Cicala Filmworks, og eru teknir upp á
Íslandi og í New York.

