Ævisaga Tupacs á hvíta tjaldið

Morgan Creek Productions hafa nú staðfest að mynd um ævi og störf rapparans Tupac Shakur sé í bígerð. Myndin, sem mun bera nafnið Tupac, mun varpa ljósi á líf og feril Shakur, sem og hið margrómaða rappstríð sem stóð lengi yfir.

Tökur eru sagðar hefjast í sumar og leita framleiðendur nú að leikara til að fara með hlutverk Tupacs. Í tilkynningunni sem Morgan Creek Productions gáfu frá sér nú fyrir stuttu kemur fram að móðir Tupacs, Afeni Shakur-Davis, styður verkefnið heilshugar. „Ég ber mikið traust í garð Morgan Creek Productions og trúi því að þeir geti varpað ljósi á listir og líf sonar míns.“

Leikstjóri myndarinnar verður enginn annar en Antoine Fuqua, en hann leikstýrði hinni margverðlaunuðu Training Day.

– Bjarki Dagur