Bíómynd um dótaleir!

Kvikmynd um leikleirinn Play-Doh er nú í undirbúningi hjá Fox kvikmyndaverinu, samkvæmt Deadline. Myndin verður gerð í samstarfi við dótaframleiðandann Hasbro.

playdoh-4pack

Fyrir þá sem ekki vita þá er Play-doh litríkur leir, eða deig, sem hægt er að móta að vild, en það er ekki laust við að maður spyrji sig um hvað myndin eigi að vera?

Fox vill fá Bridesmaids leikstjórann Paul Feig til að leikstýra og skrifa handrit, og heimildir herma að Feig eigi nú þegar í samningaviðræðum við kvikmyndaverið.

Sem stendur er Feig að vinna í endurgerð Ghostbusters myndarinnar, en myndi væntanlega snúa sér að leirnum í kjölfarið.

Meira en 2 milljarðar dósa af Play-Doh hafa selst frá upphafi.