Castle leikarinn Nathan Fillion og gamanleikarinn Martin Short úr Three Amigos og fleiri myndum, munu leika gestahlutverk í áttundu seríu sjónvarpsþáttanna vinsælu Modern Family.
Hætt var við framleiðslu lögguþáttanna Castle í maí sl. eftir að þættirnir höfðu gengið í átta ár samfleytt, en þar lék Fillion hlutverk rithöfundarins Rick Castle sem hjálpaði lögreglunni við úrlausn sakamála.
Fillion mun leika hlutverk Rainer Shine í Modern Family, en hann er veðurfréttamaður sem kynnist Dunphy fjölskyldunni.
Short mun koma fram í öðru þætti þáttaraðarinnar í hlutverki kynningarfulltrúans Merv Schechter.