Russell Crowe er í viðræðum um að leika í ævintýramyndinni The Mummy á móti Tom Cruise, samkvæmt frétt Deadline.
Myndin er væntanleg í bíó sumarið 2017.
Cruise leikur Tyler Colt, hermann í bandarísku sérsveitunum, sem þarf að glíma við afl langt aftur úr fortíðinni.
Sofia Boutella verður einnig í stóru hlutverki.
Alex Kurtzman leikstýrir myndinni sem verður sú fyrsta í Universal Monsters-heiminum sem kvikmyndaverið Universal er að skapa.