Eins og að vinna í lottóinu

Brad Pitt líður stundum eins og hann hefur unnið í lottóinu þegar hann hugsar um kvikmyndaferilinn.

„Ég þarf enn að vakna klukkan sex á morgnana og útbúa morgunmat handa sex börnum. Mér finnst mitt daglega líf ekkert stórkostlegra en hjá öðrum en mér finnst ég hafa unnið í lottóinu þegar kemur að starfinu mínu og þeim tækifærum sem það hefur veitt mér,“ sagði hinn 48 ára Pitt við Breakingnews.ie.

„Ég er mjög ánægður með hlutverkin sem ég hef verið viðloðandi upp á síðkastið. Ég hef enn mikla ástríðu fyrir því að segja sögur. Það hefur verið hluti af mér síðan foreldrar mínir fóru með mig í bílabíó þegar ég var lítill.“

Pitt hefur framleitt Moneyball og Eat, Pray, Love en efast um að hann hætti að leika í framtíðinni og gerist leikstjóri. „Ég er of mikill fullkomnunarsinni. Ég myndi gera sjálfan mig og aðra í kringum mig alveg brjálaða.“