Empire bloggar frá Cannes – Selma Hayek og Banderas kynna Puss in Boots, ofl.

Eins og komið hefur fram hér á síðunni er mikið fjör í Cannes þessa stundina þar sem kvikmyndahátíð fer fram og stjörnur eru á hverju strái. Blaðamenn Empire kvikmyndaritsins eru á staðnum, og þar sem blaðamenn kvikmyndir.is áttu ekki heimangengt þetta árið, þá birtum við hér að neðan smá vídeófrétt sem unnin er af Empire. Þar má meðal annars sjá umfjöllun um nýjustu mynd Antonio Banderas og Selmu Hayek, Puss in Boots – en vídeóið byrjar á hard core Thor nördisma.