Framtíð framhaldsmyndar vísindaskáldsögunnar Ender´s Game er óviss, eftir að fyrsta myndin var frumsýnd um síðustu helgi í Bandaríkjunum. Myndin þótti standa sig ágætlega í miðasölunni, en ekki stórkostlega.
Myndin var vinsælasta mynd síðustu helgar í Bandaríkjunum með tekjur upp á rúmlega 33 milljónir Bandaríkjadala, en myndin kostaði 110 milljónir dala í framleiðslu.
Forstjóri Lionsgate framleiðslufyrirtækisins sagði á fundi með markaðsgreinendum að kvikmyndaverið ætlaði að ákveða sig eftir eina eða tvær vikur hvort það ætlaði að gera framhald á myndinni sem byggð er á skáldsagnaseríu Orson Scott Card, en alls hefur hann skrifað 13 bækur í seríunni.
Hliðarsería í sjónvarpi er einnig í skoðun.
Ender´s Game verður frumsýnd á Íslandi 15. nóvember nk.