Fréttir

Fjögur með frábæra byrjun


Ofurhetjurnar Hin Fjögur Frábæru í kvikmyndinni The Fantastic Four: First Steps, skutust beina leið á topp íslenska aðsóknarlistans.

Ofurhetjurnar Hin Fjögur Frábæru í kvikmyndinni The Fantastic Four: First Steps, skutust beina leið á topp íslenska aðsóknarlistans á sinni fyrstu viku í sýningum. Tekjur voru rúmar 6,1 milljón og gestir nærri þrjú þúsund. Kvikmyndir.is var meðal gesta um helgina og skemmti sér vel. Superman datt úr toppsætinu eftir tveggja… Lesa meira

HBO Max komin í gang á Íslandi – Kostar 1.850


Fjórða stærsta streymisveita heims er nú aðgengileg á Íslandi.

Bandaríska streymisveitan HBO Max, sem er í eigu afþreyingarrisans Warner Bros. Discovery, hóf göngu sína á Íslandi fyrr í þessari viku og bætist þar með í flóru sambærilegra alþjóðlegra veitna sem aðgengilegar eru hérlendis, eins og Netflix, Viaplay og Disney +. Áhorfendur horft á veituna beint í gegnum vefsíðuna hbomax.com… Lesa meira

Ofurmennið áfram á toppinum


Ofurmennið, eða Superman, gefur ekkert eftir á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans.

Ofurmennið, eða Superman, gefur ekkert eftir á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans á sinni annarri viku á lista, en Strumparnir koma nýir beint í annað sætið.  Þriðja vinsælasta kvikmyndin á Íslandi er svo Jurassic World: Rebirth.  Sumarhrollurinn I Know What You Did Last Summer fór rakleiðis í fjórða sætið, einnig ný á… Lesa meira

I Know What You Did Last Summer snýr aftur – Gamlar syndir, ný kynslóð


Einhver man enn hvað þau gerðu síðasta sumar. I Know What You Did Last Summer snýr nú aftur með nýjum leikurum og gömlum andlitum.

Ný kvikmynd byggð á hinni sígildu hrollvekju sameinar upprunalegar persónur og ferskan leikarahóp í spennandi sögu um leyndarmál sem koma aftur upp á yfirborðið. Það eru liðin rúmlega tuttugu ár síðan unglingahrollvekjan I Know What You Did Last Summer kom fyrst út og varð strax að sígildri spennumynd. Nú er… Lesa meira

Ofurmennið flaug hæst


Ofurmennið, eða Superman, flaug hæst á íslenska bíóaðsóknarlistanum um síðustu helgi.

Ofurmennið, eða Superman, flaug hæst á íslenska bíóaðsóknarlistanum um síðustu helgi og náði rúmlega 8,5 milljóna króna tekjum. Toppmynd síðustu helgar, Jurassic World: Rebirth, datt niður í annað sætið. Í þriðja sæti er svo önnur gömul toppmynd, kappakstursmyndin F1. Tekjuhæsta kvikmyndin á listanum samtals er Lilo og Stitch með 44,8… Lesa meira

Topp 10 hrollvekjur í anda „camp slasher“ til að hita upp fyrir nýju I Know What You Did Last Summer


Sumarið er tíminn fyrir útilegur, ungt fólk… og blóðugan slasher-hrylling. Hér eru 10 eftirminnilegar hrollvekjur í anda „camp slasher“, fullkomnar til að koma þér í rétta stemningu áður en nýja I Know What You Did Last Summer fer í bíó.

Topplisti: 10 gæðahrollvekjur sem gerast í sveitum, sumarbúðum og einangruðum skógum – fullkomnar til að kalla fram sumarótta áður en nýja I Know What You Did Last Summer kemur í bíó Sumarið ætti að vera tími sólskins, útilegu og afslöppunar, en í kvikmyndum er sumarsveitin oft vettvangur skelfingar. Þar er… Lesa meira

Risaeðlur stukku á toppinn


Risaeðlurnar forsögulegu í kvikmyndinni Jurassic World: Rebirth, stukku á toppinn um síðustu helgi.

Risaeðlurnar forsögulegu í kvikmyndinni Jurassic World: Rebirth, gerðu sér lítið fyrir og stukku á toppinn í íslenskum og bandarískum bíóhúsum um síðustu helgi. 2.700 manns mættu í bíó að sjá skepnurnar skelfilegu. Toppmynd síðustu helgar, kappakstursmyndin F1, datt niður í annað sæti listans með tæplega þrettán hundruð gesti. Þriðja sætið… Lesa meira

F1 brunaði á toppinn


F1 fór beint á topp bíóaðsóknarlistans íslenska!

Kappakstursmyndin F1 brunaði beint á topp íslenska bíóaðsóknarlistans um síðustu helgi og sendi þar með hrollvekjuna 28 Years Later niður í annað sætið. Í þriðja sæti listans er svo How To Train Your Dragon. Hin nýja mynd helgarinnar, M3GAN 2, fór rakleiðis í áttunda sætið. Sjáðu topplistann í heild sinni… Lesa meira

Að temja innri dreka og jungískur skuggi í How to Train Your Dragon


Innra með okkur öllum býr dreki. Hvað gerist þegar við hættum að flýja hann og lærum að temja hann? Jung, skugginn og Hikkup mætast í sögu sem er meira en bara barnamynd. Hún er myndlíking fyrir innsæi, innri skugga, umbreytingu og ferðalag sálarinnar.

„Þar til þú gerir hið ómeðvitaða meðvitað, mun það stjórna lífi þínu og þú munt kalla það örlög.“— Carl Jung Hinn óséði drekaskuggi How to Train Your Dragon virðist við fyrstu sýn vera ævintýramynd fyrir börn, saga um ungan víking sem myndar óvænt tengsl við dreka sem allir óttast. En… Lesa meira

Mindhunter gæti snúið aftur og að þessu sinni sem þrjár kvikmyndir!


Mindhunter gæti snúið aftur, en ekki sem þáttaröð heldur sem þrjár kvikmyndir. Holt McCallany segir boltann vera farinn að rúlla, en margt þarf að smella saman áður en draumurinn rætist.

Frá sjónvarpsþáttum yfir í kvikmyndir Nú er kominn raunverulegur möguleiki á því að heimur Mindhunter snúi aftur, þó ekki í formi nýrrar þáttaraðar heldur sem þrjár kvikmyndir! Um er að ræða samnefnda glæpaþætti sem Netflix hætti við eftir aðeins tvær seríur, þrátt fyrir mikið lof frá bæði áhorfendum og gagnrýnendum.… Lesa meira

28 Years Later vinsælust um helgina


Uppvakningahrollurinn 28 Years Later kom sá og sigraði á íslenska bíóaðsóknarlistanum um nýliðna helgi.

Uppvakningahrollurinn 28 Years Later kom sá og sigraði á íslenska bíóaðsóknarlistanum um nýliðna helgi. Ríflega 2.100 manns komu í bíó að sjá myndina og borguðu fyrir það rúmlega 4,5 milljónir í aðgangseyri.  Í öðru sæti listans er toppmynd helgarinnar á undan, How To Train Your Dragon, en ríflega átjánhundruð manns… Lesa meira

Viltu vinna miða á 28 Years Later?


Taktu þátt í bíómiðaleik - þú gætir unnið miða á 28 Years Later!

Danny Boyle hrollvekjan 28 Years Later er komin í bíó á Íslandi en myndin hefur þegar fengið frábæra dóma úti í heimi. Í tilefni af frumsýningunni bjóðum við notendum kvikmyndir.is að taka þátt í bíómiðaleik þar sem hægt verður að vinna miða fyrir tvo á myndina. [movie id=17312] Til að… Lesa meira

Sú besta í fimmtán ár


Kvikmyndagagnrýnandi breska blaðsins The Daily Telegraph, Robbie Collin, gefur hrollvekju Danny Boyle , 28 Years Later, fimm stjörnur af fimm mögulegum í nýjum dómi.

Kvikmyndagagnrýnandi breska blaðsins The Daily Telegraph, Robbie Collin, gefur hrollvekju Danny Boyle , 28 Years Later, fimm stjörnur af fimm mögulegum í nýjum dómi. Myndin kemur í bíó í dag, fimmtudaginn 19. júní. Hann segir myndina bestu mynd Danny Boyle í fimmtán ár, eða síðan hann gerði verðlaunamyndina Slumdog Millionaire.… Lesa meira

Topp 10 zombie myndir til að hita upp fyrir 28 Years Later


Heimsendirinn er nær og uppvakningarnir snúa aftur á hvíta tjaldið. Í tilefni frumsýningar 28 Years Later rifjum við upp tíu áhrifamiklar og eftirminnilegar heimsendamyndir með uppvakningum sem hafa skilið eftir sig varanleg spor í kvikmyndasögunni.

Topplisti: 10 eftirminnilegar heimsenda- og uppvakningamyndir til að rifja upp áður en 28 Years Later kemur í bíó Heimsendirinn nálgast, eða að minnsta kosti á hvíta tjaldinu. Með 28 Years Later á næsta leiti er kjörið tækifæri að rifja upp nokkrar af áhrifamestu og eftirminnilegustu uppvakningamyndum kvikmyndasögunnar. Hvort sem það… Lesa meira

10 nútímalegar rómantískar kvikmyndir í anda Materialists


Leikstjórinn Céline Song, sem sló í gegn með Past Lives, snýr nú aftur með Materialists – rómantískt drama um ást, vald og val. Á meðan beðið er eftir frumsýningu myndarinnar þann 12. júní, geturðu kynnt þér þessar 10 nútímalegu ástarsögur sem deila svipuðu andrúmslofti og þemum.

Hér eru 10 nýklassískar rómantískar kvikmyndir til að hita upp fyrir Materialists. Materialists eftir Céline Song verður frumsýnd í kvikmyndahúsum 12. júní.Í aðalhlutverkum eru Dakota Johnson, Pedro Pascal og Chris Evans sem mynda óvenjulegt ástarsamband þriggja einstaklinga. Sögusviðið er New York, þar sem sambandsmiðlari stendur frammi fyrir erfiðu vali milli… Lesa meira

Materialists – Nýtt og ögrandi drama frá Celine Song


Í Materialists tekst leikstjórinn Celine Song á við heim yfirborðslegrar fullkomnunar og valdaójafnvægis í New York, þar sem húmor og óþægindi mætast í margræðum mannlegum tengslum.

Leikstjórinn Celine Song dregur upp „glans“-mynd af heimi þar sem vald, peningar og tilfinningar togast á – með beittu auga fyrir samtímanum. Leikstjórinn Celine Song, sem vakti heimsathygli með hinni ljóðrænu og tilfinningaríku Past Lives, snýr nú aftur með sína aðra kvikmynd – Materialists. Hér víkur hún frá rómaðri fortíðarþrá… Lesa meira

28 Years Later – Martröðin heldur áfram


Tæplega þrjátíu árum eftir fyrstu útbreiðsluna heldur sagan áfram í 28 Years Later.

Tæplega þrír áratugir eru liðnir frá því vírusinn sem breytti fólki í tryllta árásarmenn lagði Bretland í rúst á hvíta tjaldinu. Nú, 28 árum síðar, snýr þessi myrki kvikmyndaheimur aftur í 28 Years Later, framhaldi hinna goðsagnakenndu hryllingsmynda 28 Days Later og 28 Weeks Later. Myndin sameinar gamla snilld og… Lesa meira

Að temja drekann sinn (2025) – Ævintýrið heldur áfram


How to Train Your Dragon (2025) býður upp á tilfinningaríka sögu, glæsilega dreka og öfluga tækniupplifun sem gleður bæði börn og fullorðna.

Eftir að hafa heillað áhorfendur um allan heim með samnefndum teiknimyndum snýr How to Train Your Dragon nú aftur – í fyrsta sinn sem leikin kvikmynd. Frumsýning verður 12. júní nk. hér á landi og má búast við dýpri, sjónrænni og tilfinningaríkari innsýn í heim víkingadrengsins Hiks og trúfasta drekans… Lesa meira

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg fer fram um Hvítasunnuhelgina


Heimildamyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina næstkomandi.

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina næstkomandi, líkt og undanfarin ár. Í ár verða frumsýndar fimm nýjar íslenskar heimildamyndir í fullri lengd og átta stuttmyndir, auk fjölda sérviðburða. Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er ítalska leikstýran Alessandra Celesia. Tvær myndir hennar verða sýndar á hátíðinni: The Bookseller of Belfast… Lesa meira

Lilo og Stitch aftur á toppnum


Teiknimyndin Lilo og Stitch heldur stöðu sinni á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans.

Teiknimyndin Lilo og Stitch heldur stöðu sinni á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans aðra vikuna í röð og skákar þar með aftur Mission Impossible: The Final Reckoning sem er önnur vinsælasta kvikmynd landsins. Í þriðja sæti er ný mynd, Karate Kid: Legends. Einnig eru nýjar myndir í fimmta og níunda sæti, The… Lesa meira

Sigurvegarar í Karate Kid: Legends bíómiðaleik


Mjög góð þátttaka var í Karate Kid: Legends bíómiðaleiknum okkar. Nú hafa tíu heppnir þátttakendur verið dregnir út.

Mjög góð þátttaka var í Karate Kid: Legends bíómiðaleiknum okkar. Nú hafa tíu heppnir þátttakendur verið dregnir út og má sjá lista yfir þá hér að neðan. Góða skemmtun í bíó! Kristinn Sighvatsson Nancy Lyn Jóhannsdóttir Lára Geirsdóttir Jón Rafnar Guðrún Valgerður Bjarnadóttir Eiríkur Grímsson Benedikt Smári Skúlason Magga Magnúsdóttir… Lesa meira

Fannst Karate Kid strax góður


Þegar ég sá áheyrnarprufuna frá Ben Wang, sem leikur Karate Kid, þá hugsaði ég, „vá, hann er góður!

Karate Kid serían er ein sú ástsælasta í Hollywood en upphaflega myndin frá 1984, sem Robert Mark Kamen skrifaði handritið að, er fyrir löngu orðin sígild. Seríur renna yfirleitt á endanum sitt skeið en þegar endurgerðin The Karate Kid var óvænt frumsýnd árið 2010 með Jaden Smith og Jackie Chan… Lesa meira

Topp 10 kvikmyndir í anda Karate Kid


Topp 10 listi yfir bestu bardagamyndirnar þar sem allur ferillinn frá þjálfun, umbreytingu og lokaslag, er rakinn.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegan topp 10 lista yfir bestu bardagamyndirnar þar sem allur ferillinn frá þjálfun, umbreytingu og lokaslag, er rakinn. Að auki er samband kennara og nemanda mikilvægur hluti af sögunni í öllum kvikmyndunum, rétt eins og í Karate Kid: Legends sem kemur í bíó núna á… Lesa meira

Bíómiðaleikur – Karate Kid: Legends


Taktu þátt í spennandi bíómiðaleik. Þú gætir unnið miða fyrir tvo á Karate Kid: Legends!

Nýjasta myndin í hinni frábæru Karate Kid-seríu sem hófst með Karate Kid árið 1982, kemur í bíó á fimmtudaginn, 29. maí nk. Í tilefni af frumsýningunni bjóðum við notendum kvikmyndir.is að taka þátt í bíómiðaleik þar sem hægt verður að vinna miða fyrir tvo á myndina. [movie id=17320] Til að… Lesa meira

Næstu Nostalbíósýningar


Á næstu Nostalbíósýningum verður boðið upp á fjölbreytt úrval kvikmynda.

Á næstu Nostalbíósýningum verður boðið upp á fjölbreytt úrval kvikmynda. Heat (1995) Sýnd 28. maí kl: 19:00Sambíóin KringlunniSalur 1Ein áhrifamesta glæpamynd tíunda áratugarins þar sem tveir andstæðir pólar, lögregluforingi og bankaræningi, takast á í flóknu og tilfinningaríku valdatafli. Michael Mann leikstýrir snilldarlega og sameinar stíl, dýpt og spennu með eftirminnilegum… Lesa meira

Nýr spennandi kafli í heimi Karate Kid


Karate Kid: Legends opnar glænýjan kafla sem sameinar þrjá heima

Karate Kid: Legends opnar glænýjan kafla og tengir saman þá heima sem Daniel LaRusso (Ralph Macchio) og herra Han (Jackie Chan) tilheyra. Þessir tveir meistarakennarar í austrænum bardagalistum taka höndum saman til að leiðbeina og þjálfa undrabarn í kung fu, hinn unga Li Fong (leikið af Ben Wang), sem býr… Lesa meira

Raunveruleg áhættuatriði halda Mission: Impossible á toppnum


Tom Cruise heldur sér við áhættuatriði af gamla skólanum

Tom Cruise heldur sér við áhættuatriði af gamla skólanum Það sem hófst sem ný útfærsla á gömlum sjónvarpsþáttum frá sjöunda áratugnum hefur á undanförnum árum orðið ein farsælasta spennumyndaröð sem Hollywood hefur fært okkur.Ein helsta ástæða þessa mikla árangurs er án efa Tom Cruise og hans stórhættulegu áhættuatriði, sem urðu… Lesa meira

Eitthvað fyrir alla á næstu Nostalbíósýningum


Eitthvað fyrir alla á næstu Nostalbíósýningum

There Will Be Blood (2007) Sýnd 9. maí kl: 21:00Bíó ParadísSalur 1Paul Thomas Anderson leikstýrir þessari margverðlaunuðu kvikmynd sem segir sögu olíufrömuðar í byrjun 20. aldar og hvernig valdabarátta og græðgi móta líf hans og samfélagið í kring. Daniel Day-Lewis fer með aðalhlutverkið og hlaut mikið lof fyrir túlkun sína.… Lesa meira

Ofurhetjurnar þutu á toppinn


Það er komin ný kvikmynd á topp íslenska bíóaðsóknarlistans.

Það er komin ný kvikmynd á topp íslenska bíóaðsóknarlistans og hún er ekki af verri endanum. Ofur/andhetjumyndin Thunderbolts* þaut efst á listann og ruddi Minecraft niður í annað sætið en Minecraft hefur notið gríðarlega vinsælda síðustu vikur. Í þriðja sæti listans er svo Sinners, sem var í öðru sæti í… Lesa meira

Minecraft með 71 milljón


Minecraft er geysivinsæl og er nú sína fjórðu viku á toppnum á Íslandi.

Tölvuleikjamyndin A Minecraft Movie er enn vinsælasta kvikmyndin á Íslandi eftir fjórar vikur í sýningum en myndin var sýnd í fimmtán bíósölum um síðustu helgi. Tekjur myndarinnar eru nú orðnar ríflega 71 milljón krónur samtals. Sinners sitja eins og vikuna þar á undan í öðru sæti listans en nýja myndin… Lesa meira