Gamanleikarinn Jerry Stiller er látinn 92 ára að aldri. Sonur hans, leikarinn Ben Stiller, tilkynnti andlát föður síns snemma í morgun. Hann sagði föður sinn hafa verið frábæran pabba, afa og eiginmann. Jerry Stiller var giftur Anne Meara í 62 ár en hún dó 2015.
„Ég tilkynni með sorg að faðir minn, Jerry Stiller, er látinn. Hann var frábær pabbi, afi og góður eiginmaður Anne í um 62 ár. Við munum sakna hans. Elska þig pabbi,“ segir Ben Stiller á Twitter.
Jerry var vinsæll á sjónvarpsskjánum en hann fór með hlutverk Frank Constanza í Seinfeld og Arthur Spooner í The King of Queens. Einnig skaut hann upp kollinum í kvikmyndum eins og Heavyweights, Zoolander og báðum Hairspray-myndunum svo dæmi séu nefnd.