Hangover og Django á forsíðu maíblaðs Mynda mánaðarins

Nýtt tölublað af Myndum mánaðarins er komið út og má nálgast það strax á rafrænu formi hér á kvikmyndir.is, eins og fyrri tölublöð sömuleiðis. Dreifing er einnig hafin í verslanir og á aðra staði sem dreifa blaðinu í pappírsformi.

Það eru engir aðrir en vinirnir úr Úlfagenginu, eða The Wolfpack, úr Hangover 3 sem prýða forsíðu Bíó-hlutans en Hangover 3 er ein þeirra mynda sem frumsýndar verða í maí.

Á forsíðu DVD-hlutans er engin önnur en Django Unchained eftir Quentin Tarantino, en hún er ein þeirra mynda sem kemur út á vídeó í apríl.

Myndir mánaðarins er að venju með yfirlit yfir allar nýjar myndir í bíó og á DVD/Blu-ray í maímánuði auk þess sem fjallað er um nýja tölvuleiki sem koma út í mánuðinum.

Eins og alltaf er blaðið kryddað með skemmtilegum fréttum og frásögnum. Gullkornin, staðreyndirnar og stjörnuspáin eru einnig á sínum stað eins og venjulega.

Bíómiðaleikurinn er líka á sínum stað, og hægt er að taka þátt í honum með því að smella hér.