Framhaldsmyndin High School Musical 3: Senior Year: hefur slegið í gegn í Bretlandi 3 vikum fyrir
frumsýningu! Engin mynd í kvikmyndasögunni hefur, samkvæmt tilkynningu frá
framleiðendum myndarinnar, Disney, selt eins mikið af miðum í forsölu í
Bretlandi.
Nú þegar hafa selst miðar í Bretlandi fyrir um hálfa milljón punda, eða um 100
milljónir íslenskra króna. Sú mynd sem
átti fyrra metið var Harry Potter and the Goblet of Fire með 227.000 pund í forsölu.
Myndin verður frumsýnd í Bretlandi þann 22. Október nk.

