Hryllingurinn sigrar flugvélarnar

Hrollvekjan The Conjuring hafði betur en teiknimyndin Flugvélar, eða Planes, í íslenskum bíóhúsum um helgina, en The Conjuring er toppmyndin á íslenska bíóaðsóknarlistanum þessa vikuna, en Planes í öðru sæti.

conjuring

The Conjuring fjallar um rannsakendur sem sérhæfa sig í yfirskilvitlegum atburðum sem hjálpa fjölskyldu sem komast í kynni við illar verur. Sagan gerist árið 1971. Caroly og Roger Parren flytja ásamt fjölskyldu sinni í niðurnýtt sveitabýli á Rhode Island og fljótlega fara hollvekjandi og martraðakenndir hlutir að eiga sér stað. Í örvæntingu sinni, þá hefur Carolyn samband við rannsakendur sem sérhæfa sig í yfirskilvitlegum málum, Ed og Lorraine Warren. Þau komast að því að allt landsvæðið sem húsið stendur á hefur á sér djöfulega bölvun sem núna eltir fjölskylduna hvert sem hún fer. Til að stöðva þetta þá verða rannsakendurnir að nota alla sína krafta og þekkingu, áður en öflin eyða öllum sem þau ná til.

Í þriðja sæti síðan framtíðartryllirinn Elysium með Matt Damon í aðalhlutverki, en allar þrjár efstu myndirnar á listanum eru nýjar.

Í fjórða sæti er síðan Baltasar Kormákur með fyrrum toppmynd listans, 2 Guns, og í fimmta sæti er gamanmyndin We´re the Millers. 

Ein ný mynd til viðbótar er á listanum, en það er einnig eina íslenska myndin á listanum, Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson.  Myndin fer beint í 6. sætið á listanum.

Smelltu hér til að sjá hvaða myndir eru í bíó í dag.

Smelltu hér til að skoða hvaða myndir eru væntanlegar í bíó. 

Hér fyrir neðan er svo listi 15 efstu mynda á Íslandi í dag:

listinn