Náðu í appið
Maria by Callas

Maria by Callas (2017)

"Við erum tvær, Maria og Callas"

1 klst 53 mín2017

Maria Callas er tvímælalaust þekktasta óperusöngkona sem uppi hefur verið og jafnframt ein sú dáðasta enda bjó hún yfir einstæðum sönghæfileikum og hlaut af þeim...

Rotten Tomatoes91%
Metacritic71
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Maria Callas er tvímælalaust þekktasta óperusöngkona sem uppi hefur verið og jafnframt ein sú dáðasta enda bjó hún yfir einstæðum sönghæfileikum og hlaut af þeim sökum viðurnefnið „gyðjan“ eða „hin guðdómlega“. Í þessari vönduðu mynd er farið yfir feril hennar í máli og myndum og mikil áhersla lögð á að hennar eigin orð og sjónarmið komi skýrt fram. Maria, sem lést langt um aldur fram árið 1977, aðeins 53 ára, fór ekki í felur með að hún væri ekki sama manneskjan fyrir framan sviðsljósin og fyrir aftan þau. Annars vegar væri hún söngkonan Callas og hins vegar hin brothætta Maria sem glímdi við þunglyndi og depurð, en ástæður þess rakti hún m.a til æskuára sinna. Í myndinni er einnig farið yfir persónlegt líf Mariu, samböndin sem hún átti í við hina ýmsu karlmenn og vinskapinn sem hún myndaði við listafólk um allan heim.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Tom Volf
Tom VolfLeikstjórif. -0001

Framleiðendur

Unbeldi ProductionsFR
Petit DragonFR
Elephant DocFR