Náðu í appið
Another Kind of Wedding

Another Kind of Wedding (2017)

"There´s always an odd one out."

1 klst 26 mín2017

Þau Matthew og Louisa eru að fara að gifta sig og bæði fjölskyldur þeirra og vini drífur að til að vera viðstödd hina hátíðlegu stund.

Deila:
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Söguþráður

Þau Matthew og Louisa eru að fara að gifta sig og bæði fjölskyldur þeirra og vini drífur að til að vera viðstödd hina hátíðlegu stund. Þar á meðal er bróðir brúðgumans, Kurt, en hann glímir við það vandamál að vera fyrrverandi unnusti Louisu og er vægast sagt mjög ósáttur við ráðahaginn. Það er stundum sagt að hver hafi sinn djöful að draga og það mætti vel heimfæra upp á persónur þessarar myndar því fyrir utan Kurt og brúðhjónin glíma nánast allir brúðkaupsgestirnir við eitthvað úr fortíðinni sem ekki hefur verið gert upp. Um leið og hin persónulegu vandamál sem þau Matthew, Louisa og Kurt glíma við sín á milli fara að koma upp á yfirborðið byrja aðrir gestir einnig að rifja upp sín vandamál sem eru af ýmsum toga og öllum tegundum. Hvort þeim takist að leysa þau áður en presturinn kemur og athöfnin hefst kemur svo um síðir í ljós ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Pat Kiely
Pat KielyLeikstjórif. -0001

Framleiðendur

Banner House ProductionsCA
Vroom ProductionsCA
CCI EntertainmentCA