Náðu í appið
Bönnuð innan 12 ára

Utøya 22. juli 2018

Justwatch

Frumsýnd: 5. september 2018

The day that changed us forever

92 MÍNNorska

Þann 22. júlí 2011 voru meira en 500 ungmenni í pólítískum sumarbúðum á eyju fyrir utan Osló þegar vopnaður hægrisinnaður öfgamaður réðst á þau. Fyrr þennan sama dag hafði hann sprengt bílsprengju við ríkisbyggingu í Osló áður en hann hélt ferð sinni áfram til eyjunnar Úteyjar þar sem hann byrjaði að skjóta á fólkið. Í þessari fyrstu mynd... Lesa meira

Þann 22. júlí 2011 voru meira en 500 ungmenni í pólítískum sumarbúðum á eyju fyrir utan Osló þegar vopnaður hægrisinnaður öfgamaður réðst á þau. Fyrr þennan sama dag hafði hann sprengt bílsprengju við ríkisbyggingu í Osló áður en hann hélt ferð sinni áfram til eyjunnar Úteyjar þar sem hann byrjaði að skjóta á fólkið. Í þessari fyrstu mynd sem gerð er um árásína og þennan örlagaríka dag þá kynnumst við hinni 18 ára Kaja og vinum hennar, en myndin er skáldskapur sem byggist á hinum raunverulegu atburðum. Myndin hefst þegar unga fólkið er í áfalli yfir sprengjunni í Osló og reynir að fullvissa fjölskyldur sínar um að þau sjálf séu óralangt frá sprengjuárásinni. Allt í einu breytist allt skyndilega þegar byssuskot heyrast. Við fylgjumst svo með Kaja þegar hún berst fyrir lífi sínu – mínútu fyrir mínútu.... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn