Leikkonan Irina hefur um árabil heimsótt bróður sinn Sorin í sumarbyrjun og í þetta sinn hefur hún með sér leikskáldið Bóris, sem jafnframt er elskhugi hennar. En þegar hin unga Nína af næsta bæ verður hrifin af Bóris taka málin óvænta stefnu, ekki síst fyrir Konstantín, son Irinu, sem elskar Nínu.