Náðu í appið
Poms

Poms (2019)

"It's never too late to chase a dream"

1 klst 31 mín2019

Martha er orðin dálítið leið á hlutunum og ákveður að fara á elliheimili til að deyja (að eigin sögn).

Rotten Tomatoes36%
Metacritic36
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:KynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Martha er orðin dálítið leið á hlutunum og ákveður að fara á elliheimili til að deyja (að eigin sögn). En undir þessu hrjúfa yfirborði býr kraftur og áræðni sem kemur vel í ljós þegar hún fær þá hugdettu að stofna klappstýrusveit ásamt hinum konunum á elliheimilinu og taka þátt í klappstýrukeppni fyrir 18 ára og eldri. Að sjálfsögðu fær hugmynd Mörthu um hvatningarsveitina frekar dræmar undirtektir hjá stjórnendum elliheimilisins, a.m.k. í byrjun enda virðast fæstar konurnar vera í því formi sem slíkt útheimtir, hvað þá að vera færar um að taka þátt í keppni á móti stúlkum sem eru meira en 50 árum yngri en þær. En lengi lifir í gömlum glæðum ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Zara Hayes
Zara HayesLeikstjórif. -0001
Shane Atkinson
Shane AtkinsonHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

STXfilmsUS
Sierra/AffinityUS
Mad as BirdsGB
Rose PicturesUS
Entertainment OneCA