Extremely Wicked, Shockingly Evil and Vile (2019)
"The Story Behind America's Most Notorious Serial Killer"
Ted Bundy var afar geðfelldur maður sem átti auðvelt með að heilla konur með nærveru sinni og lágstemmdri framkomu.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
Kynlíf
Hræðsla
BlótsyrðiSöguþráður
Ted Bundy var afar geðfelldur maður sem átti auðvelt með að heilla konur með nærveru sinni og lágstemmdri framkomu. Útlitið skemmdi heldur ekki fyrir, en hann þótti bæði myndarlegur og kynþokkafullur. En undir þessu yfirborði bjó einhver allra grimmasti fjöldamorðingi í sögu Bandaríkjanna sem að lokum játaði á sig 30 morð en er talinn hafa myrt mun fleiri en það. Myndin er byggð á bókinni The Phantom Prince: My Life with Ted Bundy eftir Elizabeth Kloepfer sem var um tíma unnusta Teds Bundy og átti lengi vel erfitt með að trúa að hann væri sá fjöldamorðingi sem hann reyndist þó vera því sjálf hafði hún allt aðra reynslu af honum og gat ekki gert sér í hugarlund að undir mjúku yfirborðinu byggi allt annar maður en sá sem hún þekkti.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur

















