Bitch (2017)
"Bring a chew toy."
Þau Bill og Jill eru hjón í millistétt sem eignast hafa fjögur börn en hafa alla tíð átt í ströggli við að halda sér fjárhagslega réttum megin við strikið.
Bönnuð innan 12 ára
VímuefniSöguþráður
Þau Bill og Jill eru hjón í millistétt sem eignast hafa fjögur börn en hafa alla tíð átt í ströggli við að halda sér fjárhagslega réttum megin við strikið. Bill hefur þurft að vinna myrkranna á milli á meðan Jill hefur þurft að vera heima með börnin og svo fer að hún bugast af allri pressunni og breytist í hund. Bill veit vart sitt rjúkandi ráð þegar hann kemur eitt sinn heim og krakkarnir hafa lokað mömmu sína niðri í kjallara þar sem hún geltir og urrar og er vís með að bíta hvern þann sem reynir að nálgast hana. Læknar og félagsleg yfirvöld standa ráðþrota gegn þessu og Bill verður að gjöra svo vel og taka sér frí í vinnunni til að hugsa um börnin. Við það fær hann hjálp frá systur sinni, Beth, en spurningin er hvort hann láti ekki að lokum sjálfur undan pressunni ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur


Verðlaun
Bitch vann til fyrstu verðlauna á Fantasy-kvikmyndahátíðinni í Montreal í Kanada fyrir handritið sem leikstjórinn Marianna Palka skrifaði.














