Náðu í appið
Hvernig á að vera klassa drusla

Hvernig á að vera klassa drusla (2020)

1 klst 28 mín2020

Karen, lífsreynd sveitapía, kemur á vel pimpaða bílnum sínum að sækja vinkonu sína Tönju, fáláta borgarsnót, sem akkúrat á því augnabliki er að lemja sokkum...

IMDb5.7
Deila:
9 áraBönnuð innan 9 ára

Hvar má horfa

Streymi
Netflix
Leiga
Síminn

Söguþráður

Karen, lífsreynd sveitapía, kemur á vel pimpaða bílnum sínum að sækja vinkonu sína Tönju, fáláta borgarsnót, sem akkúrat á því augnabliki er að lemja sokkum í andlitið á kærastanum og hætta með honum enn eina ferðina. Þær stöllur halda saman út á land þar sem þær hyggjast vinna á stóru sveitabýli yfir sumarið. Tanja á erfitt með sig eftir sambandsslitin og virðist strax sjá eftir ferðinni en þegar á býlið er komið fellur hún fljótt fyrir myndarlegum sveitapilti þar á bæ. Hins vegar þegar tilraunir hennar til að heilla piltinn upp úr skónum misheppnast herfilega byrjar hún að dást að því hvernig Karen virðist geta sofið hjá hverjum sem er án væntinga eða eftirmála. Tanja biður því Kareni um að kenna sér að vera eins og hún. Kenna henni hvernig á að vera klassa drusla.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Ólöf Birna Torfadóttir
Ólöf Birna TorfadóttirLeikstjórif. -0001

Aðrar myndir

Gagnrýni