Náðu í appið
Last and First Men

Last and First Men (2020)

1 klst 10 mín2020

Heimildamynd Jóhanns Jóhannssonar, Last and First Men var frumsýnd á Berlínarhátíðinni 2020 og vakti mikla athygli, enda var Jóhann gríðarlega virt tónskáld sem hér var...

Rotten Tomatoes100%
Metacritic80
Deila:

Söguþráður

Heimildamynd Jóhanns Jóhannssonar, Last and First Men var frumsýnd á Berlínarhátíðinni 2020 og vakti mikla athygli, enda var Jóhann gríðarlega virt tónskáld sem hér var að stíga sín fyrstu skref á bak við myndvélina. Stórleikkonan Tilda Swinton er sögumaður og leiðir áhorfendur í gegnum undraheiminn sem Jóhann skapaði. Í framtíðinni eftir tvo milljarða ára stendur mannkynið frammi fyrir yfirvofandi útrýmingu. Stakir og súrrealískir minnisvarðar eru nánast það eina sem stendur eftir og varpa skilaboðum sínum inn í öræfin. Í myndinni flökkum við um svæði í niðurníðslu þar sem sorglegir atburðir hafa gerst – staðir hlaðnir táknrænni merkingu. Í gegnum myndina skynjum við nærveru, einhverskonar vitund sem er að reyna að hafa samband við okkur.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Jóhann Jóhannsson
Jóhann JóhannssonLeikstjórif. -0001

Aðrar myndir

Paul Rattray
Paul RattrayHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

Zik Zak FilmworksIS