Still Crazy
1998
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 9. apríl 1999
They were Strange Fruit. Some called them the greatest rock band of the '70s. They haven't played together for 20 years. No wonder they're worried about their performance.
95 MÍNEnska
73% Critics Tilnefnd til tveggja Golden Globe verðlauna. Sem besta mynd í flokki gaman og söngvamynda og fyrir besta lag í kvikmynd eftir þá Mick Jones, Marti Frederiksen og Chris Difford "The Flame Still Burns".
Hljómsveitin Strange Fruit hafði allt sem goðsagnakenndar rokkhljómsveitir höfðu; peninga, frægð, velgengni, kvenkyns aðdáendur, söngvara sem lést af of stórum skammti af eiturlyfjum og jafnvel guðdómlegan endi, þegar eldingu laust niður á hljómleikasviðið þegar sveitin var að spila á útitónleikum. Tuttugu árum síðar eru hljómsveitarmeðlimir hver í... Lesa meira
Hljómsveitin Strange Fruit hafði allt sem goðsagnakenndar rokkhljómsveitir höfðu; peninga, frægð, velgengni, kvenkyns aðdáendur, söngvara sem lést af of stórum skammti af eiturlyfjum og jafnvel guðdómlegan endi, þegar eldingu laust niður á hljómleikasviðið þegar sveitin var að spila á útitónleikum. Tuttugu árum síðar eru hljómsveitarmeðlimir hver í sínu horni að gera ólíka hluti, en upp kemur hugmynd um endurkomu sveitarinnar. Tony, fyrrum hljómborðsleikari, fer að leita að hinum meðlimum sveitarinnar sem vinna nú við garðyrkju, þakviðgerðir og á hóteli. Allir eru þeir orðnir mjög hversdagslegir, ýmist giftir eða einhleypir. Þeir eru amk. alls ekki villtir rokkarar lengur. En með hjálp fyrrum umbðsmanns þeirra, Karen, sem enn dreymir um sóló gítarleikarann Brian, sem virðist vera fallinn frá, þá reyna þeir allir, gamlir, feitir og krumpaðir eins og þeir eru, að kveikja gamla neistann á nýjan leik. ... minna