Náðu í appið
Seven Samurai

Seven Samurai (1954)

Shichinin no samurai

"The Mighty Warriors Who Became the Seven National Heroes of a Small Town"

2 klst 40 mín1954

Sagan gerist á sextándu öldinni í Japan, en þar er fátækt þorp undirokað af bófagengi sem stelur hrísgrjónauppskerunni.

Rotten Tomatoes100%
Metacritic98
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára

Söguþráður

Sagan gerist á sextándu öldinni í Japan, en þar er fátækt þorp undirokað af bófagengi sem stelur hrísgrjónauppskerunni. Öldungurinn í þorpinu stingur upp á því að þorpsbúar ráði sér Ronin, eða samúræja án húsbónda, til að verja þorpið. Fjórir bændur fara í bæinn til að leita að heppilegum manni í verkið, en það eina sem þeir hafa að bjóða viðkomandi er þrjár hrísgrjónamáltíðir á dag og húsaskjól. Þeir ráða á endanum hinn góðhjartaða fyrrum samúræja Kambei Shimada sem segir að þeir þurfi að finna sex samúræja til viðbótar til að vernda þorpið. Kambei ræður fimm til viðbótar og spéfuglinn hugaða Kikuchiyo þar að auki, og þeir flytja allir í þorpið. Kambei skipuleggur varnir þorpsins og samúræjarnir byrja að þjálfa bændurna og kenna þeim að verja land sitt og fjölskyldur fyrir bardaganum sem í vændum er.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

TOHOJP