Náðu í appið
Akeelah and the Bee

Akeelah and the Bee (2006)

"Changing the world... one word at a time."

1 klst 52 mín2006

Líf hinnar ellefu ára gömlu Akeelah Anderson er ekki auðvelt.

Rotten Tomatoes86%
Metacritic72
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Líf hinnar ellefu ára gömlu Akeelah Anderson er ekki auðvelt. Faðir hennar er látinn, móðir hennar skiptir sér lítið af henni, og bróðir hennar hangir með strákagengi. Hún er klár, en umhverfið er ekki henni hliðhollt. Til að komast hjá eftirsetu vegna fjarvista í skólanum, þá tekur hún þátt í stafsetningarkeppni. Henni til mikillar undrunar þá vinnur hún keppnina. Skólastjórinn biður hana um að mæta í frekari þjálfun hjá enskukennaranum Dr. Larabee, fyrir næstu keppni. Akeelah hefur möguleika á að ná alla leið í landskeppnina Scripps National Spelling Bee, og þátttaka hennar gæti haft mikil áhrif á samfélagið sem hún býr í, en hún þarf að yfirvinna eigið óöryggi og óstöðugt heimilislíf. Hún þarf einnig að venjast Dr. Larabee og hans tiktúrum, og takast á við mun reyndari keppendur sem koma frá betri heimilum.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Doug Atchison
Doug AtchisonLeikstjóri

Framleiðendur

Lions Gate FilmsUS
2929 ProductionsUS
Out of the Blue... Entertainment
Starbucks Entertainment
Cinema Gypsy ProductionsUS