Náðu í appið
Some Like It Hot

Some Like It Hot (1959)

"Marilyn Monroe and her bosom companions"

2 klst1959

Þegar tveir tónlistarmenn í Chicago, Joe og Jerry, verða vitni að Valentínusardags fjöldamorðunum, þá vilja þeir komast út úr borginni og fjarri bófanum sem er...

Rotten Tomatoes95%
Metacritic98
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Þegar tveir tónlistarmenn í Chicago, Joe og Jerry, verða vitni að Valentínusardags fjöldamorðunum, þá vilja þeir komast út úr borginni og fjarri bófanum sem er ábyrgur fyrir morðunum, Spats Colombo. Þeir gera nánast hvað sem er til að fá að koma fram utan borgarmarkanna, en eina starfið sem þeir vita um er í stúlknahljómsveit sem er á leið til Flórída. Þeir koma á lestarstöðina dulbúnir sem Josephine og Daphne, en þeir/þær voru ráðnar til að leysa af í hljómsveitinni sem saxófón- og bassaleikarar. Þeir njóta þess að vera í kringum stelpurnar í hljómsveitinni, sérstaklega Sugar Kane Kowalczyk sem syngur og leikur á ukulele. Joe reynir sérstaklega mikið að töfra hana upp úr skónum á meðan milljónamæringurinn Osgood Fielding III gengur með grasið í skónum á eftir Jerry/Daphne. Vandræðin aukast á meðan þeir félagar reyna að halda því leyndu hverjir þeir eru í raun og veru, og glæpóninn Spats Colombo og menn hans birtast til að funda með öðrum glæpaforingjum.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

The Mirisch CompanyUS