Eldist ekki alveg nógu vel
The Last Picture Show er ein af þessum eldri myndum sem manni er ráðlagt að sjá. Hún er vissulega vel gerð og einstök að mörgu leyti. Hún fjallar um nokkra krakka í smábæ í Texas á ...
"Anarene, Texas, 1951. Nothing much has changed..."
Það er árið 1951 í smábænum Anarene í Texas.
Öllum leyfðÞað er árið 1951 í smábænum Anarene í Texas. Sam the Lion, eigandi kaffihússins í bænum, sundlaugar og kvikmyndahúss, og óopinber föðurímynd margra ungra manna í bænum, er einn af fáum íbúum bæjarins sem virðist vera sáttur við hlutskipti sitt og búsetu í bænum. Yngri kynslóðin virðist ekki sjá mikla framtíð í því að vera í bænum. Hinn viðkvæmi Sonny Crawford og hinn hranalegi Duane Jackson eru útskriftarnemar í miðskólanum, leiðtogar í frekar lánlausu ruðningsliði skólans, og bestu vinir. Duane er með hinni fallegu Jacy Farrow, dóttur olíubaróns bæjarins. Móðir Jacy, Lois Farrow, býður Jacy gott ráð fyrir framtíðina: að giftast þeim sem hefur bestu framtíðarmöguleikana, og þá helst að komast burt úr bænum, og sá drengur er ekki Duane. Jacy fer að líta í kringum sig. Sonny er nýhættur með kærustu sinni Charlene Tuggs, en þau virðast hafa verið saman bara af því að þau höfðu ekkert betra að gera. Á meðan Sonny dreymir um Jacy, eins og hinir strákarnir, þá á hann ástarævintýri með hinni miðaldra Ruth Popper, óhamingjusamri eiginkonu ruðningsþjálfarans.



The Last Picture Show er ein af þessum eldri myndum sem manni er ráðlagt að sjá. Hún er vissulega vel gerð og einstök að mörgu leyti. Hún fjallar um nokkra krakka í smábæ í Texas á ...