Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börn

I Am Legend 2007

Frumsýnd: 26. desember 2007

The Last Man on Earth is Not alone.

101 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 68% Critics
The Movies database einkunn 65
/100

Íbúum New York borgar fækkar úr rúmlega 19 milljónum niður í einn mann, Robert Neville, eftir að ólæknandi vírus dreifist um allan heim. Þrjú ár líða en Neville gefur aldrei upp vonina um að finna einhvern annan sem lifði vírusinn af. Þótt það séu engir menn í nánd þá er Neville ekki einn. Fórnarlömb faraldursins stökkbreyttust í viðbjóðsleg... Lesa meira

Íbúum New York borgar fækkar úr rúmlega 19 milljónum niður í einn mann, Robert Neville, eftir að ólæknandi vírus dreifist um allan heim. Þrjú ár líða en Neville gefur aldrei upp vonina um að finna einhvern annan sem lifði vírusinn af. Þótt það séu engir menn í nánd þá er Neville ekki einn. Fórnarlömb faraldursins stökkbreyttust í viðbjóðsleg kvikindi sem halda til í myrkrinu og fylgjast með hverri hreyfingu hans í von um að fá færi til að læsa klónum í hann. Neville hefur nóg sér til dundurs þótt hann hafi engan félagsskap annan en hundinn sinn. Það vill nefnilega svo til að hann er mjög fær vísindamaður og beitir öllum sínum kröftum til að finna lækningu fyrir þá sýktu áður en þeir ná að drepa hann. ... minna

Aðalleikarar

Vissir þú


Will Smith einn í heiminum er ekki það sem ég myndi kalla uppskrift af góðri mynd. Ég viðurkenni fúslega að ég bjóst við lélegri mynd...en ég hafði sem betur fer rangt fyrir mér. Myndin er merkilega skemmtileg og nálgast á köflum að vera hryllingsmynd, minnti stundum á 28 Days Later og Dawn of the Dead endurgerðina. Myndin útskýrir hvað gerðist í flashback atriðum og maður fær svar við öllum spurningum. New York borg er sýnd tóm og í niðurníðslu og það hefur greinilega engu verið til sparað, mjög flott. Það er ákveðinn galli á myndinni að öll dýr og verur eru gerðar í tölvu og það sést ansi vel að þær eru gervi en maður er fljótur að gleyma því þegar allt fer á fullt skrið. Það er samt alltaf áhrifaríkara þegar alvöru leikarar eru í gervi frekar en tölvugerðar verur. Dæmi um slíkt er t.d. The Decent, Blade 2 og LOTR serían. Annars er Will Smith ágætur og myndin bara ansi spennó og góð.

Þetta er þriðja myndin sem er gerð eftir bók Richard Matheson sem heitir einmitt I Am Legend. Sú fyrsta heitir The Last Man of Earth frá 1964. Næsta heitir Omega Man frá 1971. Ég hef séð þá síðarnefndu (með Charlton Heston). Ég verð að segja að I Am Legend er betri.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Ég er goðsögn....
I am Legend gerist árið 2012 eftir að veirufaraldur hefur eytt 99% mannkyns. Robert Neville(Will Smith) er ofursti sem hefur New York borg út af fyrir sig. Á daginn veiðir hann sér til matar ásamt hundi sínum en á næturnar felur hann sig fyrir myrkraverum(fyrrverandi mannfólk). Hann leitar að lækningu en eitthvað gengur það erfiðlega. I am Legend er byggð á sömu skáldsögu og kvikmyndirnar The Omega Man og Last Man on Earth, þetta er því ekki endurgerð heldur endursögn og því ætla ég að forðast allan samanburð. Hvað I am Legend varðar þá finnst mér hún alveg djöfull góð. Will Smith stendur sig alveg með prýði og tekst vel að halda myndinni uppi aleinn stóran hluta myndarinnar(hann er alls ekki eini leikarinn í myndinni). Hann er hér í einu áhugaverðasta hlutverki sínu í langan tíma og tel ég það mikla framför hjá honum að hafa leikið í þessari mynd. Atburðarrásin er vel skrifuð og er oftast spennandi(ekki alltaf, krakkinn í seinni hálfleik dró aðeins úr fúttinu). I am Legend er allt í allt virkilega vönduð mynd með mikinn tilgang og fær 8/10 í einkunn fyrir að vera frábær, að vísu ekki alveg fullkomin, en frábær skemmtun. Ég mæli sannarlega með þessari.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
I am Legend
Robert Neville er einn eftir í heiminum og leitar af lækningu gegn K-vírusnum sem í fyrstu var notað sem lækning gegn krabbameini en drap flest alla og breytti restinni í ofbeldisfull og hættuleg skrímsli. Þetta fjallar I am Legend nokkurn veginn um og verð ég að segja að ég hafði mjög gaman af henni. Útlit yfirgefnu borgarinnar er frábært og mjög raunverulegt. Will Smith stendur sig afar vel í hlutverki sínu og sömuleiðis er hundurinn með honum alveg frábær. Tölvubrellurnar í myndinni eru góðar en hefði mátt gera Myrkraverurnar raunverulegri því þær litu stundum frekar kjánalega út. En eins og ég sagði hafði ég mjög gaman af þessari mynd því þetta er mjög spennandi mynd og gef henni 8/10.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn