Frábær mynd
Ég fór á þessa mynd um daginn og hún var með góðum tæknibrellum og bara mjög góð.
Myndin er nútíma ævintýri og fjallar um Kalla, tólf ára borgarbarn sem er alinn upp af einstæðri móður í úthverfi Reykjavíkur.
Bönnuð innan 7 ára
HræðslaMyndin er nútíma ævintýri og fjallar um Kalla, tólf ára borgarbarn sem er alinn upp af einstæðri móður í úthverfi Reykjavíkur. Hann eyðir stærstum hluta tíma síns fyrir framan skjái, í ævintýralöndum netheima, tölvuleikjum eða horfandi á DVD og sjónvarp. Þegar Kalli er sendur vestur á firði til að dvelja hjá pabba sínum um jólin á afskekktum sveitabæ breytast sýndarævintýri skjáheima í alvöru ævintýri. Hann fær fljótlega nóg af sveitalífinu og ákveður að stinga af. Fljótlega er hann rammvilltur, símasambandslaus í kafaldsbyl og rekst meira að segja á lifandi ísbjörn. En sýndarheimar eru ekki bara á skjánum, í afskekktri sveitinni eru á reiki dularfullar verur sem er erfitt að festa hönd á - Dugguholufólkið.
Ég fór á þessa mynd um daginn og hún var með góðum tæknibrellum og bara mjög góð.