Náðu í appið
Stikkfrí

Stikkfrí (1997)

Count Me Out

"Barnsrán er enginn barnaleikur"

1 klst 18 mín1997

Hrefna er tíu ára gömul stúlka sem býr hjá móður sinni og stendur í þeirri trú að faðir hennar hafi alla tíð búið í Frakklandi.

Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Leiga
Síminn

Söguþráður

Hrefna er tíu ára gömul stúlka sem býr hjá móður sinni og stendur í þeirri trú að faðir hennar hafi alla tíð búið í Frakklandi. Á tíu ára afmælisdeginum sínum kemst hún að því að hann býr í raun og veru í Breiðholtinu. Hrefna fer strax á stúfana ásamt vinkonu sinni Yrsu og uppgvötar að pabbinn er giftur annarri konu og á með henni tveggja ára gamalt barn. Hrefna gerir nokkrar árangurslausar tilraunir til að ná athygli pabba síns og við eina slíka tilraun haafa vinkonurnar barnið á brott með sér. Nú upphefst mikill gamanleikur þegar stelpurnar reyna að tjónka við þá stuttu með öllum tiltækum ráðum. Á sama tíma leitar lögreglan ákaflega að barninu um alla borg.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Íslenska kvikmyndasamsteypanIS
Zentropa EntertainmentsDK
Peter Rommel Productions
Filmhuset ProduksjonerNO

Gagnrýni notenda (5)

Lélegasta mynd sem ég hef séð. Ég hefði frekar átt að horfa á auglýsingar heldur enn myndina.

Stikkfrí er ein besta barnamynd sem hefur verið gerð á Íslandi. Leikarar bera af, og þá sérstaklega Bergþóra Aradóttir og Halldóra Geirharðs. Öll fjölskyldan hefur gaman af þessari myn...

Tvær vinkonur hefja leit að föður annarrar þeirra og flakka einar um götur Reykjavíkurborgar. Til að faðirinn hafi nú örugglega samband við dótturina, þá taka þær upp á því að ræ...

Mér finnst þessi rauðhærða alvag slá í gegn. En það er eitt sem er ömó, það er með þetta lag sem Örn A er að syngja. Þær fara í hljóðverið og síðan um kvöldið er það allt ...

Söguþráðurinn er frábær eina af bestu barna myndum til þessa. Frábærir leikarar og ekki síst Bergþóra Aradóttir og Haldóra Björnsdóttir . Skemmtileg mynd sem fær alla til að hlæja ....