Náðu í appið
Bangkok Dangerous

Bangkok Dangerous (2008)

Time to Kill

" There's only one way out., It's all in the execution.,"

1 klst 39 mín2008

Nicolas Cage leikur aðalhlutverkið í þessari spennu- og hasarmynd, sem fjallar um bandaríska leigumorðingjann Joe (Cage), sem ferðast um allan heim til að framfylgja beiðnum...

Rotten Tomatoes9%
Metacritic24
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Nicolas Cage leikur aðalhlutverkið í þessari spennu- og hasarmynd, sem fjallar um bandaríska leigumorðingjann Joe (Cage), sem ferðast um allan heim til að framfylgja beiðnum yfirmanns síns um launmorð. Hann fær vel borgað og spyr ekki spurninga um réttmæti morða sinna og er að klára verkefni í Prag þegar hann er sendur til Bangkok til að drepa fjórar manneskjur fyrir glæpasamtök í borginni. Þar á meðal er glæpamaður sem stundar mansal á ungum stúlkum og stjórnmálamaður sem stendur í vegi fyrir samtökunum. Joe ræður unga smáglæpamanninn Kong (Shakhrit Yamnarm) sem aðstoðarmann og tengilið við samtökin. Í apóteki einu hittir hann svo hina þöglu Fon (Charlie Yeung) og býður henni út. Þau falla hvort fyrir öðru og færir Fon honum langþráðan félagsskap í hættulegu lífi sínu, sem hann heldur þó leyndu fyrir henni. Auk þess tengist hann Kong vinaböndum og verður eins konar fyrirmynd eða kennari hans. Þessi nýfengna manngæska Joe verður þó fljótt til þess að hann verður í meiri hættu en nokkurn tíma áður og þarf að gæta sín enn betur í skuggalegu starfi sínu.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Virtual StudiosUS
Saturn FilmsUS
Blue Star Pictures
Living FilmsTH
Bangkok Dangerous
Initial Entertainment GroupUS

Verðlaun

🏆

1 tilnefning

Gagnrýni notenda (2)

Þessi mynd er prump. Í alvöru, hún er einhver illa lyktandi lofttegund. Þegar ég horfði á hana gaus upp þessi ferlegi fnykur. Silent but deadly. Ég opnaði alla glugga en það dugði ekki t...

★★★★☆

Nicolas Cage leikur hér leigumorðingjann Joe sem er staddur í Bangkok í verkefni og ræður sér Tælenskan aðstoðarmann og verðandi nemanda. Vinur okkar kynnist heyrnarlausri stelpu sem vinnur...