Náðu í appið
What happens in Vegas...

What happens in Vegas... (2008)

"Get Lucky."

1 klst 39 mín2008

Maður og kona vakna eftir rosalegt djamm í Las Vegas og uppgötva að þau hafa gift sig, og annað þeirra er búið að vinna risa vinning í spilavítinu.

Rotten Tomatoes25%
Metacritic36
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:VímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Söguþráður

Maður og kona vakna eftir rosalegt djamm í Las Vegas og uppgötva að þau hafa gift sig, og annað þeirra er búið að vinna risa vinning í spilavítinu. Joy McNally er framakona, sem er trúlofuð, en kærastinn er orðinn þreyttur á henni, og segir henni upp. Jack Fuller er sprelligosi, sem gerir einhverja gloríu þannig að yfirmaður hans, sem er líka faðir hans, rekur hann úr vinnu. Bæði eru þau frekar niðurlút og fara til Las Vegas til að hressa sig við. Þegar þangað er komið verður villa í tölvunni til þess að þau fá sama herbergið. Eftir fyllerí, þá vakna þau upp gift, en vilja bæði sem fyrst losna úr hjónabandinu. En þegar þau vinna þrjár milljónir bandaríkjadala í spilavítinu, þá er spurning hver á peningana. Þegar þau fara með málið fyrir dómara, segir hann þeim að þau skuli vera gift í sex mánuði, og sækja ráðgjöf. Joy flytur því inn til Jack. Bæði vita þau að ef eitt þeirra vill skilja, þá fær hitt allan peninginn. Þannig að það verður keppikefli þeirra beggja að fá hinn aðilann til að vilja skilja.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Penn Station Entertainment
Regency EnterprisesUS
21 Laps EntertainmentUS
Dune Entertainment IIIUS
Mosaic Media GroupUS
20th Century FoxUS